Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Þingvangs ehf.
dags. 30. apríl 2020 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Brynjureits vegna lóðarinnar nr. 46 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að breytt er texta í 14. málsgrein í kaflanum "Sér ákvæði fyrir einstök hús" þannig að bætt er í textann að heimilt verður að vera með gistiaðstöðu á fyrstu hæð hússins við Hverfisgötu og atvinnustarfsemi og gistiaðstöðu á efri hæðum, samkvæmt tillögu
Urban arkitekta ehf.
dags. 22. apríl 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2020. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2020 til og með 31. ágúst 2020. Engar athugasemdir bárust.