Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. maí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptar viðbyggingar við vestur- og suðurhlið hússins á lóð nr. 22 við Sogaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. apríl 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. apríl 2014. Fyrirspurn BN046578 fylgir erindinu. Stækkun : 31.8 ferm., 103,4 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sogavegi nr. 5, 7, 9, 16, 18, 20, 24.