Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Karólínu Gunnarsdóttur, mótt. 27. mars 2017, um stækkun lóðarinnar nr. 1 við Silungakvísl um tvo metra, samkvæmt skissu á mæliblaði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. apríl 2017.