Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. janúar 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. janúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að rífa bílskúr og byggja nýjan á tveimur hæðum með vinnustofu í kjallara og skála á milligólfi til vesturs við fjórbýlishús á lóð nr. 13 við Sóleyjargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. maí 2016. Niðurrif: xx ferm.,xx rúmm. Stærð: 60,7 ferm., 210,5 rúmm. Gjald kr. 10.100