Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. apríl 2020 var lögð fram fyrirspurn Gunnars Sigurðssonar dags. 21. febrúar 2020 um hækkun á þaki hússins á lóð nr. 27 við Tómasarhaga, samkvæmt fyrirspurnartillögu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. apríl 2020.