Lögð fram fyrirspurn Ágústs Hafsteinssonar, dags. 9. ágúst 2022, um að hækka þak og koma fyrir tveimur nýjum þakkvistum, auk þakglugga í húsinu á lóð nr. 27 við Tómasarhaga. Einnig lagt fram forsaga málsins, uppdrættir, umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 7. apríl 2020 og samþykki meðeigenda dags. 15. júní 2021.