Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Elínar G. Gunnlaugsdóttur f.h. Ólafs H. Símonarsonar dags. 6. janúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.1 vegna lóðarinnar nr. 8 við Spítalastíg. Í breytingunni felst að rífa núverandi skúrbyggingu milli Spítalastígs 8 og 10 og byggja þriggja hæða byggingu í hennar stað næst Spítalastíg og tvær hæðir næst Bergsstaðastræti 17b, samkvæmt uppdrætti Egg arkitekta dags. 3. janúar 2011.