Fyrirspurn
Lagt fram bréf Sigríðar S. Júlíusdóttur, dags. 12. júlí 2012, varðandi umsókn Dvalarheimilis aldraðra sjómanna Hrafnistu um rekstrarleyfi í flokki II, sem í eru umfangslitlir áfengisveitingastaðir. Sótt er um veitingatíma áfengis til kl. 20.00. Óskað er umsagnar skipulags- og byggingarsviðs.