Lagt fram bréf Sigríðar S. Júlíusdóttur, dags. 12. júlí 2012, varðandi umsókn Dvalarheimilis aldraðra sjómanna Hrafnistu um rekstrarleyfi í flokki II, sem í eru umfangslitlir áfengisveitingastaðir. Sótt er um veitingatíma áfengis til kl. 20.00. Óskað er umsagnar skipulags- og byggingarsviðs.
Svar
Leiðrétt bókun frá embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 13. júlí 2012. Ekki er hægt að veita jákvæða umsögn um erindi að svo stöddu með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 19. júlí 2012.