Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 30. janúar 2015 var lögð fram fyrirspurn Glámu-Kím, dags. 30. janúar 2015 um breytingu á skilmálum deiliskipulags Naustareits vegna lóða nr. 10-14 við Tryggvagötu og 14-18 við Vesturgötu. Breytingin gengur út á að fjölga íbúðaeiningum, byggingarmagn helst óbreytt og að bílastæðakrafa verði í samræmi við gildandi aðalskipulag. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuða, dags. 29. janúar 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.