Lögð fram umsókn Hildigunnar Haraldsdóttur dags. 29. nóvember 2019 ásamt bréfi Hildigunnar Haraldsdóttur og Þóris Gunnarssonar dags. 28. nóvember 2019 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags fyrir Tryggvagötu 13. Í breytingunni felst að heimilt er að nota allt að 1048,8 fm. íbúðarhúsnæðis eða allt að 23% af heimilu byggingarmagni ofan jarðar á lóð tímabundið sem hótelíbúðir, samkvæmt tillögu ódags. Einnig eru lögð fram bréf Hildigunnar Haraldsdóttur og Þóris Gunnarssonar dags. 31. júlí 2018, 1. nóvember 2018 og 20. desember 2018.