Lögð fram fyrirspurn
Húss og skipulags ehf.
dags. 1. september 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 13-15 við Tryggvagötu. Í breytingunni felst m.a. að fella niður kjallara að Tryggvagötu 13, gera bílastæði fyrir fatlaða norðaustan við Tryggvagötu 13 sem felst í að ekið verði inn frá Geirsgötu, gera þaksvalir á hluta þaks á 7. hæð, heimild til að láta svalir og útsýnisgluggar skagi út fyrir byggingarreit o.fl.