Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn T13 ehf. dags. 24. október 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 13. við Tryggvagötu. Í breytingunni felst að heimilt er að fara út fyrir byggingarreit með svalir/útsýnisglugga, kvöð er felld niður um inndregna 1. hæð/jarðhæð að norðaustanverðu o.fl., samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 23. október 2014. Einnig lagt fram bréf
Húss og skipulags ehf.
dags. 13. nóvember 2014. Tillagan var auglýst frá 28. nóvember 2014 til og með 9. janúar 2015. Engar athugasemdir bárust.