Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
PKdM Arkitekta ehf.
dags. 14. febrúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bústaðahverfis vegna lóðarinnar nr. 34 við Hólmgarð. Í breytingunni felst að halda í núverandi geymsluhúsnæði á lóðinni og breyta grein 5.3.1 í greinargerð, samkvæmt uppdr.
PKdM Arkitekta ehf.
dags. 12. febrúar 2018. Einnig er lagður fram tölvupóstur Jóns Andra Helgasonar f.h. Skátasambands Reykjavíkur dags. 23. apríl 2018 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti. Tillagan var grenndarkynnt frá 28. mars 2018 til og með 25. apríl 2018. Einnig lagður fram tölvupóstur Skátasambands Reykjavíkur dags. 8. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.