Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á bakhlið, hækka þak og byggja kvist og svalir á framhlið, innrétta veitingastað í kjallara gamla hússins, vinnustofu listamanns á jarðhæð viðbyggingar og tvær íbúðir á efri hæðum með utanáliggjandi álstiga á húsi á lóð nr. 50 við Laugaveg. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 2. desember 2020 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. janúar 2021. Stækkun: 118,5 ferm., 462,1 rúmm. Gjald kr. 11.200