Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 3. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta íbúðir í norðurhluta 2. hæðar atvinnuhúss á lóð nr. 17 við Stórhöfða. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2015.