breyting á deiliskipulagi
Templarasund 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 631
12. maí, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lögð fram umsókn T.ark Arkitekta ehf., mótt. 5. apríl 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.141.2 vegna lóðarinnar nr. 3 við Templarasund og nr. 4 við Kirkjutorg. Í breytingunni felst að bætt er við takmörkuðum byggingarreit í inngarði undir svölum við austurhlið Templarasunds 3. Byggingarreiturinn takmarkast við 1. hæð og kemur til með að innihalda stoðrými við rekstur á jarðhæð húsanna, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf., dags. 5. apríl 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016. Greiðsla þarf að berast áður en breytingin verður auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.