Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. september 2018 var lögð fram umsókn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 26. júní 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skógarhlíðar vegna lóðarinnar nr. 14 við Skógarhlíð. Í breytingunni felst stækkun á lóð til suðurs og gera þar byggingarreit fyrir bílageymslur og tæknirými á einni hæð og afmarka nýjan byggingarreit vestan við slökkvistöðina, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 26. júní 2018. Erindinu var frestað, umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lagt fram að nýju.