Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. nóvember 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054285 þannig að byggt verður við suðurgafl á 6. til 9. hæð og austurgafl á 8. og 9. hæð, endaíbúðir þessara hæða stækka, að auki er innra skipulagi íbúða og geymslum breytt í húsi á lóð nr. 103a við Hraunbæ. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. nóvember 2018.
Stækkun: Gjald kr. 11.000