Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. apríl 2020 var lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 23. janúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunbæjar 103-105 vegna lóðarinnar nr. 103A við Hraunbæ. Í breytingunni felst að heimilt verður að hafa þakgarða á hluta þaks yfir 5. og 7. hæð, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar dags. 19. desember 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2020.