Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 103-105 við Hraunbæ. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir stækkun deiliskipulagssvæðis til vesturs þar sem heimilt verði að reisa 6-10 hæða byggingu með um 50 íbúðir fyrir eldri borgara, samkvæmt uppdrætti Guðmundar Gunnlaugssonar ark. dags. 24. mars 2015. Uppbyggingin er í samræmi við áherslur um þéttingarsvæði Þ85 í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-20130. Einnig er lagður fram skýringaruppdráttur dags. 24. mars 2015.