Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053964 þannig að inngangar eru færðir, gluggum og hurðum jarðhæðar að Fógetagarði og Kirkjustræti er breytt, burðarvirki og innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð er breytt, innréttað "spa" í kjallara, kjallari undir Thorvaldsenstræti 2 er steyptur upp og klæddur steinskífum, gerð ný flóttaleið frá 7. hæð inn í stigahús á 4. hæð og gluggum að Vallarstræti er breytt í hóteli á lóð nr. 2 við Thorvaldssensstræti. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 23. apríl 2019. Gjald kr. 11.200