Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. apríl 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054086, m.a. innrétta 18 herbergi á 3. og 4. hæð þar sem áður voru skrifstofur, stækka kjallara Thorvaldsenstrætis 6, bæta við skála á þaksvalir á 5. hæð auk minni háttar breytinga á innra skipulagi allra hæða hótels á lóðinni Austurv Thorvaldsenss. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun xx ferm., xx rúmm. Eftir stækkun: 12.025,2 ferm., 45.218,7 rúmm. Erindi fylgir yfirlit breytinga. Gjald kr. 12.100