Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Ásgeirs Björnssonar, mótt. 28. mars 2017, um að loka svölum á norðurhlið hússins á lóð nr. 4 við Sigluvog. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2017.