Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. nóvember 2010 þar sem sótt er um leyfi til að rífa núverandi bílskýli mhl 70 og byggja staðsteypt bílskýli sem verður mhl 2 og verður byggt að bílskýli á lóð nr. 6 á lóð nr. 4 við Sigluvog. Kynningin stóð yfir frá 16. desember 2010 til og með 13. janúar 2011. Engar athugasemdir bárust.
Jákvæð fyrirspurn BN041810 dags. 20. júlí 2010 og samþykki eigenda aðliggjandi lóðar dags. 16. september 2010 fylgir málinu.
Niðurrif: Bílskúr 27,7 ferm., 72,0 rúmm.
Stærð: Nýr bílskúr 59,4 ferm., 216,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 16.694