Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. mars 2015 var lögð fram umsókn Landstólpa þróunarfélags ehf. móttekin 10. mars 2015 um framkvæmdaleyfi vegna fornleifarannsóknar í Austurhöfn. Einnig er lagður fram uppdr. Ferils verkfræðistofu ódags. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2015.