Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. september 2015 var lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar R15060002 dags. 3. september 2015 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Gamlabæjar ehf. um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að Laugarnesvegi 52. Húsið er í íbúðarhverfi, ÍB 21, en stendur á horni Laugarnesvegar og Sundlaugavegar, sem er skilgreind sem aðalgata. Gististaðurinn verður í húsi áföstu eldra húsinu á horninu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er bú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2015..