Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn VA arkitektar ehf., mótt. 22. ágúst 2017, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags fyrir staðgreinireit 1.174.2 vegna lóðar nr. 18 við Barónsstíg. Í breytingunni felst að heimilt verður að hafa fjölbreyttari starfsemi á lóðinni, skv. tillögu VA arkitekta, dags. 8. ágúst 2017. Einnig er lagt fram bréf eiganda, dags. 13. nóvember 2017. Tillagan var auglýst frá 5. janúar 2018 til og með 16. febrúar 2018. Engar athugasemdir bárust.