Lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar dags. 24. febrúar 2014 ásamt bréfi bílaleigu Flugleiða dags. 12. febrúar 2014 þar sem óskað er eftir að gerður verði lóðarleigusamningur við bílaleiguna fyrir Flugvallarveg 5. Erindið er f.h. borgarráðs sent skrifstofu eigna og atvinnuþróunar og umhverfis- og skipulagssviði til meðferðar.