Lagt fram bréf Kópavogsbæjar dags. 11. maí 2018 um auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum við Bakkabraut 12-16 og Hafnarbraut 17-23. Í tillögunni felst að mannvirki á lóðunum 17, 19, 21 og 23 verði rifin og í þeirra stað rísi íbúðabyggð. Engar breytingar frá núverandi stöðu eru fyrirhugaðar á lóðunum Bakkabraut 12, 14 og 16.