Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. maí 2016 var lagt fram bréf Kópavogsbæjar, dags. 6. apríl 2016 þar sem óskað er eftir umsögn Reykjavíkurborgar á skipulaglýsingu, dags. 3. janúar 2016, sem felst í breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 vegna niðurfellinga Kópavogsganga. Erindinu var vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 6. maí 2016.