Lagður fram tölvupóstur Kópavogsbæjar, skipulagsstjóra Kópavogs, dags. 15. maí 2019 þar sem óskað er eftir umsögn á skipulagslýsingu dags. 29. apríl 2019 vegna framkominnar tillögu um breytingu á gildandi aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og tillögu að deiliskipulagi á sama svæði. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr þróunarreitur, Traðarreitur-austur, fyrir þéttingu byggðar.