Á fundi skipulagsfulltrúa 16. ágúst 2013 var lagt fram bréf skipulagsstjóra Kópavogs dags. 8. ágúst 2013 vegna samþykktar bæjarstjórnar Kópavogs 25. júlí 2013 að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Kópavogs. Tillagan er í kynningu frá 9. ágúst til 20. september 2013. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra aðalskipulags.