Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Inga Gauta Ragnarssonar mótt. 1. nóvember 2017 um að lyfta þaki hússins og setja stærri glugga og svalir. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. desember 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. janúar 2018.