Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. maí 2013 þar sem spurt er hvort heimilt sé að byggja tvöfaldan bílskúr sem í brúttó ferm verður 56 ferm á stærð á lóð nr. 3 við Skerplugötu.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.