Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. janúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Andreu Óskar Jónsdóttur dags. 3. janúar 2020 um að setja sólskála við eldhús neðri hæðar hússins á lóð nr. 10 við Byggðarenda og síkka glugga, samkvæmt skissu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020.
Svar
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.