Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf., mótt. 10. mars 2017, um að hækka og breyta núverandi rishæð (6.hæð) á húsi nr. 6 á lóð nr. 6-8 við Bolholt og innrétta sem gististað/hótelíbúðir, samkvæmt meðfylgjandi skissum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. mars 2017.