Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. júní 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júní 2013 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja múrklæðningu og í staðinn komi álklæðning, koma fyrir lyftu, svalalokun, þvottahús fært til og bætt er við nýrri íbúð í rými 0403 í húsi á lóð nr. 1-3 við Sléttuveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. júní 2013..
Stækkun vegna lyftu og sólstofa á svalir : XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 9.000