Lögð fram umsókn Ask arkitekta ehf. f.h. lóðarhafa dags. 20. febrúar 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kirkjusands vegna lóðanna nr. 2 við Kirkjusand. Breytingin felur í sér uppbyggingu á reitnum þar sem áhersla er lögð á blandaða byggð atvinnu- og íbúðahúsnæðis í samræmi við markmið aðalskipulags Reykjavíkur, samkvæmt uppdr. Ask arkitekta ehf. dags. 20. febrúar 2015.