Fyrirspurn
Lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjóra R10090088 dags. 27. apríl 2011 ásamt erindi óbyggðarnefndar frá 19. s.m. varðandi erindi Hafnarfjarðarbæjar til óbyggðanefndar um sveitarfélagamörk á landsvæði. Erindið er sent Reykjavíkurborg til upplýsingar og gefinn kostur á að tjá sig um málið og skila inn athugasemdum fyrir fimmtudaginn 12. maí nk.