Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Skógarhlíðar vegna nýrra undirganga undir Litluhlíð og nýrra göngu- og hjólastíga meðfram Skógarhlíð. Jafnframt er aflagður göngustígur meðfram Bústaðarvegi, samkvæmt uppdrætti
Arkþing - Nordic ehf.
dags. 13. janúar 2020. Tillagan var auglýst frá 18. febrúar 2020 til og með 31. mars 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Kristín Ása Einarsdóttir dags. 19. febrúar 2020, Bjarni Valur Guðmundsson dags. 25. febrúar 2020 og Landsamtök hjólreiðamanna dags. 31. mars 2020.