Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. júlí 2021 var lagður fram tölvup. Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 15. júlí 2021, þar sem óskað er umsagnar skipulagsfulltrúa um starfsleyfi
Vöku hf.
fyrir hjólbarðaverkstæði. Einnig lögð fram greinargerð vegna umsóknar um starfsleyfi dags. 5. júlí 2021 og greinargerð um breytingar á starfsemi Vöku dags. 5. júlí 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. júlí 2021.