Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf. dags. 27. maí 2021 ásamt bréfi dags. 20. maí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kirkjusands vegna reits F. Í breytingunni felst að landnotkun reitsins verði breytt að hluta til í íbúðarhúsnæði. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2021.