Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. september 2016 var lögð fram fyrirspurn Ark arkitekta ehf., mótt. 13. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Kirkjusands. í breytingunni felst að fyrirhuguð neðanjarðar bílgeymsla á Kirkjusandi verði á einni hæð í stað þriggja hæða og fari að hluta til út fyrir lóðarmörk. Einnig er lögð fram tillaga að nýjum lóðarmörkum neðanjarðar, ódags. og bréf Ask arkitekta ehf., dags. 13. september 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. október 2016.