Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 29. september 2020 um að gerð verði lóð í kringum grenndarstöð/djúpgáma sem verður staðsett inn á bílastæði Kjarvalsstaða að Klambratúni, samkvæmt uppdr. dags. 8. júní 2020. Einnig er lagður fram tölvupóstur Elísabetar Jónasdóttur og Péturs Ástvaldssonar dags. 8. júlí 2021 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdafresti.