Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2017 var lagt fram erindi skipulags- og byggingarfulltrúa sveitarfélagsins Ölfus dags. 24. nóvember 2017 þar sem óskað er eftir umsögn um matslýsingu dags. 13. nóvember 2017 vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi virkjunar á Hellisheiði. Óskað er eftir að umsögnin berist fyrir 8. desember 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa og deildarstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju.