Lögð fram fyrirspurn Ingunnar Helgu Hafstað, mótt. 13. febrúar 2017, um að stækka verslunarhúsnæði í austurhluta 1. hæðar hússins á lóð nr. 22B við Skólavörðustíg með því að breyta íbúð á 1. hæð hússins að hluta verslunarinnar og tengja bakhúsið á lóðinni við 1. hæð hússins þannig að bakhúsið verði einnig hluti af versluninni. Einnig er lagt fram bréf Ingunnar Helgu Hafstað, dags. 13. febrúar 2017.