Á fundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2014 var lögð fram umsókn
Reita I ehf.
dags. 29. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli, fækkun á bílastæðum og að gera grasmanir við lóðarmörk, innan og utan lóðar, samkvæmt uppdr. T.ark dags. janúar 2014.