Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 10. október 2014 var lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 2. október 2014 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Vietnam Restaurant um rekstrarleyfi í flokki II fyrir veitingastaðinn Vietnam Restaurant að Suðurlandsbraut 8. Sótt er um veitingatíma áfengis til kl. 23:00 alla daga. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. október 2014.