Lögð fram umsókn Rauðsvíkur, mótt. 8. nóvember varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.174.0, Landsbankareits, vegna lóðanna nr. 92 við Hverfisgötu og 73 við Laugaveg. Í breytingunni felst að lagfærð er stærð kjallara hússins í skilmálatöflu o.fl., samkvæmt uppdr. Tark. dags. 7. nóvember 2016
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.